Röskva hefur þá grundvallarstefnu að beita sér fyrir jöfnum rétti allra til náms. Við teljum að menntastofnun á borð við Háskóla Íslands skuli vera sameign og sé mikilvægur hlekkur í velferðarkerfi þjóðarinnar. Við krefjumst jafnra réttinda og möguleika allra til að sækja sér æðri menntun, óháð efnahag, þjóðerni, kyni, eða stöðu að öðru leyti.
Við erum stúdentapólitísk mótumst ekki eftir flokkadráttum í landspólitík. Við bjóðum alla þá sem finna samleið með okkur velkomna. Við neitum þó að trúa því að hagsmunabarátta geti verið ópólitísk. Málefni stúdenta við Háskóla Íslands teygja sig langt út fyrir veggi skólans og við skorumst ekki undan því að kljást við þau mál. Nemendur skólans eru fjölbreyttur hópur sem býr við mismunandi aðstæður.
Við teljum að Stúdentaráð eigi að vera þrýstiafl sem hefur vökul augu með stjórnvöldum, veitir þeim aðhald og lætur í sér heyra þegar réttindi stúdenta eru fótum troðin. Hlutverk Stúdentaráðs á að vera að byggja Háskólann upp að innan en að sama skapi beita sér út á við. Stúdentaráð á að vera öflugur málsvari stúdenta og berjast fyrir réttindum þeirra. Stúdentaráð á þannig ekki að vera nemendafélag heldur rödd stúdenta.
Við erum Röskva og við viljum vera sú rödd.
